Munirinn á því að búa í borg eða bæ
Einar Kristinn Sveinbjörnsson er fæddur 20. mars 1971 í Reykjavík og alinn upp bæði í Reykjavík og Kópavogi. Hann hefur búið í New York, Flórens á Ítalíu og nokkur sumur í bæði Kaupmannahöfn og Jótlandi. Einar flutti hingað þegar frænka hans, Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir, sem er skólastjóri Reykhólaskóla bauð honum vinnu við skólann, hann hafði reyndar verið hér tvö sumur áður þegar hann og frænka hans ráku Hótel Bjarkalund og þekkti því aðeins til svæðisins. Einar er mjög hrifinn af Reykhólum, finnst gott að búa hér, rólegt og mikil nánd í samfélaginu. Allt öðruvísi heldur en að búa í borg, hann þekki alla í þorpinu og finnst það mjög skemmtilegt. Mun afslappaðara heldur en að búa í Reykjavík segir hann en saknar helst kaffihúsa, tónleika og menningaviðburða sem er alltof lítið af hérna. Og svo saknar hann auðvitað fjölskyldu og vina. Hann segir sína helstu skemmtun hérna á Reykhólum vera að heimsækja fólk, alls kyns hreyfing eins og t.d. Boot Camp, fara í heimsókn og hitta fólk og svo bara sjónvarpið og hanga í tölvunni og kannski lesa.
Hér má sjá Einar lýsa því hvernig honum finnst að búa í Reykhólahreppi